Bóka þarf tíma, opið er fyrir bókanir í heilsuveru.
Auk inflúensubólusetningar verður boðið upp á örvunarskammt við Covid-19 eða grunnbólusetningu fyrir þau sem þurfa.
Fyrir þau sem vilja þiggja örvunarskammt við Covid-19 þurfa fjórir mánuðir að hafa liðið frá því þau fengu þriðja skammt af bóluefni.
Fólk er vinsamlegast beðið um að mæta í stuttermabol innst klæða til að auðvelda bólusetningu.