Þar sem aldursmörk fyrir notkun Astra Zeneca bóluefnis eru mismunandi eftir kynjum er rétt að tilgreina sérstaklega hvaða transfólk ætti frekar að fá önnur bóluefni:
- Transkarlar undir 55 ára:
- skráðir sem karlar í Þjóðskrá: Hafa samband við heilsugæslu til að fá merkingu til að fá annað en Astra Zeneca bóluefni
- Ef skráning í Þjóðskrá er „kona“ á þegar að vera merking í bólusetningakerfinu að fái ekki Astra Zeneca bóluefni
- Transkonur:
- Ef hormónameðferð en skráning í Þjóðskrá „karl“: Hafa samband við heilsugæslu til að fá merkingu til að fá annað en Astra Zeneca bóluefni
- Ef ekki hormónameðferð er ekki ástæða til sérstakra ráðstafana.
- Ef skráning í Þjóðskrá er „kona“ á að vera merkt að fái ekki Astra Zeneca bóluefni ef undir 55 ára aldri.
- Transkonur eldri en 55 ára á hormónameðferð ættu að hafa samband við heilsugæslu til að fá merkingu til að fá annað en Astra Zeneca bóluefni.
- Ef hormónameðferð en skráning í Þjóðskrá „karl“: Hafa samband við heilsugæslu til að fá merkingu til að fá annað en Astra Zeneca bóluefni
Sóttvarnalæknir