Læknisvottorð
Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu.
- Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
- Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris, 0 kr.
- Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr. (Athugið að gjald er fyrir vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða, sjá neðar)
- Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
- Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 2.346 kr.
- Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 842 kr.
- Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 1.816 kr.
- Vottorð vegna beiðni um þjálfun, 1.816 kr.
- Vottorð vegna öflunar hjálpartækja, 1.816 kr.
- Vottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 1.816 kr.
- Vottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 1.816 kr.
- Vottorð vegna heimahjúkrunar, 1.816 kr.
- Vottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 1.816 kr.
- Vottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 1.816 kr.
- Vottorð vegna sjúkranudds, 1.816 kr.
- Vottorð vegna sjúkradagpeninga, 1.816 kr.
- Vottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 1.816 kr.
- Vottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 1.816 kr.
- Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 1.816 kr.
- Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 2.346 kr.
- Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 2.346 kr.
- Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 2.346 kr.
- Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 2.346 kr.
- Vottorð vegna dagmóðurstarfa, 2.346 kr.
- Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs 2.346 kr.
- Vottorð til skattayfirvalda, 2.346 kr.
- Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 2.346 kr.
- Vottorð um heilsufar einstaklinga til félagsþjónustunnar og annarra stofnunar, 2.346 kr.
- Vottorð um heilsufar kjörforeldra, stuðningsforeldra og fósturforeldra, 2.346 kr.
- Vottorð vegna byssuleyfis, 7.264 kr.
- Vottorð vegna skóla og sumarbúða erlendis, 7.264 kr.
- Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda (meiraprófs), 7.264 kr.
- Vottorð um niðurstöður úr Covid sýnatökum, 7.609 kr.
Vottorð um starfshæfni og fyrir staðfestingu á heilsufari til Virk, 2.174 kr.
Fyrir eftirfarandi vottorð skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 5.610 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
- Vottorð vegna þungunarrofs og ófrjósemisaðgerða,
- Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða
Fyrir eftirfarandi vottorð skal að lágmarki greitt fyrir klukkutímavinnu læknis, 16.540 kr. og síðan 5.513 kr. til viðbótar fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
- Vottorð til lögmanna og tryggingafélaga vegna sjúkdóma eða slysa, til tryggingafélaga vegna líf- og sjúkdómatrygginga eða umsókna um örorkubætur eða ættleiðingu, til lögreglu, sýslumanna, vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis,
- Ítarlegt vottorð um heilsufar einstaklings vegna beiðni þriðja aðila (skóla, atvinnurekanda, sjómannavottorð)
- Vinna við yfirferð sjúkraskrár fyrir afhendingu
Greiðslur vegna vottorða fara ekki í afsláttarstofn.